fbpx

HAFIÐI SMAKKAÐ ÞETTA RUGL?

ÉG MÆLI MEÐMATUR

Mamma sendi mér súkkulaði frá Ommnomm, og ég hef í rauninni aldrei smakkað þetta af viti. Ég smakkaði dökkt súkkulaði, og ég er ekkert rosalega mikið fyrir dökkt súkkulaði, fitandi sætt mjólkur súkkulaði og ég er sold. Allavega, hún móðir mín var búin að tala um þetta súkkulaði, þá deildi hún því með mér að hún fékk sér bita og áður en hún vissi af var hún búin að tæta þetta í sundur. Ég hugsaði “róleg skvís ..” en já .. allavega

Processed with VSCOcam with f2 preset

.. sama gerðist hjá mér. Enda erum við mamma alveg eins, í útliti og að mörgu öðru leyti ..

Processed with VSCOcam with f2 preset

Ég tók semsagt fyrsta bitann, þið vitið til að svala sykurlönguninni. Bragðið er lakkrís og sjávarsalt, og mjólkursúkkulaði að sjálfssögðu.

Processed with VSCOcam with f2 preset

Þetta gerðist svo fljótt að þetta er bara ekki í minningunni, þetta hvarf, man ekki hvort ég hafi brotið stykkið í bita eða hvort ég hafi tuggið eða bara andað þessu ofan í mig.

Processed with VSCOcam with f2 preset

Tilvalið á laugardögum, vetrardögum, sem gjöf, á mánudögum, hvar sem er í rauninni. Það er ágætt að þetta sé ekki til í Danmörku.

Mæli með þessu fólk!

STRÁKURINN MINN ANDREAS FYRIR CHANEL ..

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Anna

    5. December 2015

    Þú ert með mjög skemmtilega pistla. Myndi þig langa að gera ,,jólagjafa lista fyrir hann”, allir bara að blogga um ,,jólagjafalista fyrir hana” :)