Fyrir ekki svo löngu mætti ég uppí stúdíó einhversstaðar í Nørrebro til að vera í auglýsingu fyrir Fields. Ég meira segja bloggaði um það HÉR.
Ég var svo handvissum að þau hefðu hætt við auglýsinguna útaf því hún var hallærisleg því það var önnur svaka flott Fields auglýsing í gangi í mars mánuði, en aldeilis fór hún í gang og núna er hún stanslaust gargandi í sjónvarpinu. Ég skemmti mér takmarkað í þessu pródúksjóni enda var mikið reynt á réttlætiskenndin mína og óþolinmæði fyrir hroka. Það má svosem alveg segja það að ég var í smá fýlu í öllum þeim litlu klippum sem sést í mig þarna. Svaka pro ..
EN JÆJA, vinna er vinna og mér datt í hug að deila þessu blómkenndu og sérstöku auglýsingu með ykkur kæru lesendur.
Skrifa Innlegg