fbpx

EITTHVAÐ SEM MÁ EKKI ..

Hvað er það sem má ekki?

Jú, að lenda í Samsøe Samsøe útsölu þegar allar þínar litlu sætu krónur eiga að fara í fæðu, reikninga eða almennt common sense. Já, kæru vinir, það má alveg orða það svoleiðis að ég hafi verið heimskulega kærulaus í dag. Ég gerði sjálfum mér reglur og sór að ég mundi lifa skírlífi hvað varðar verslanir hér í Danmörku þangað til að fastar og góðar tekjur væru komnar, negldar og þinglýstar.

Þetta allt fór til fjandans og skellti kortinu í blessaða posann.

Einfaldar flíkur en mér finnst þær æðislegar, stórar og þæginlegar. Ég er bara í oversized þessa dagana, það er það eina sem grípur augun mín þessa dagana.

HELGIKAUP helgikauppppp

Einstaklega myglaður á þessum myndum – en, svoleiðis var það bara.

Ég veit ekki með ykkur en ég ætla fara í smá afmælisteiti hjá frænku.

Góða helgi!

Meistari Steven Klein.

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elísabet Gunn

    13. October 2012

    Það má leyfa sér stundum. Og sérstaklega á útsölum , – og hvað þá svona fínar basic flíkur. Til hamingju með þær. :) Njóttu kvöldsins.