fbpx

ÉG ER FARINN TIL PARÍSAR!!

PERSONAL

Ég verð ekki við næstu daga á blogginu þar sem ég er að fara í afmæliskæróferð til Parísar –

Ég verð eflaust ofvirkur á instagramminu, svo þið getið fylgst með þar; @HELGIOMARSSON

Ef þið hafið einhverjar hugmyndir hvað við eigum að sjá og gera megiði endilega láta heyra í ykkur í comments, það væri vel þegið –

Ég er eiginlega mega spenntur, hef sjaldan verið eins spenntur fyrir utanlandsferð. Þetta er í fyrsta skipti í brjálaðslega langan tíma þar sem ég er ekki að taka neina vinnu með mér í frí, bara frí, gera ekki rassgat. Nema fara á einn fund í Elite í París, en hey, það er bara gaman.

Ég er reyndar líka með snapchat, ég er yfirleitt bara almennt að vera spes held ég – helgiomars á Snap

Jæja, au revoir!

paris paris2 paris3

BRÚSAGLEÐI

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Erna

    29. May 2015

    Myndi klárlega fara á Bertie’s Cupcakery, það er æðislega lítið bollakökubakarí með fáránlega góðum kökum, hægt að labba svo með bakkelsið og sitja við Notre Dame kirkjuna :) Svo mæli ég með að skoða tripadvisor appið til að finna góða veitingastaði og til að finna allt ! Góða skemmtun !

  2. Halla

    2. June 2015

    Njóttu. París er frábær.