Já kæru vinir, þetta eru sérstakir tímar! Ég er að komast nokkuð ágætlega úr þeim, ég er að sjálfssögðu að gera allt sem ég á ekki að vera gera og svo gera ekkert af því sem ég á að vera gera. Þess vegna hefur eitthvað lítið af bloggum komið hingað inn – EN núna er ég að rífa mig upp og er tilbúinn með to-do lista og LEEET’S GO! Eins og ég skrifa uppi, ég er að komast ágætlega úr þessum tímum, það er samt með smá sykri. En ég efa að það sé einhver hér sem nennir að lesa hvað Helgi á erfitt í fínu íbúðinni sinni.
Blessun lífs míns er að sjálfssögðu Noel, hann er SKÆLbrosandi allan daginn, hann er vaktstjóri, framkvæmdarstjóri og gæðastjóri á heimilinu. Jæja, rífa sig á lappir! Áfram gakk! Hér er ekkert slor, hann er hvetjandi, krúttlegur, skemmtilegur og bara ógeðslega fyndinn. Við förum út fjórum sinnum á dag þessa dagana svo það gerir allt að sjálfssögðu betra.
Einn krúttlegur sem finnst vindurinn geggjaður ..
.. og pabbi pirrandi
Flestir að reyna fá sinn skammt af fersku lofti og D-vítamíni
Fallegi elsku drengur
Pabbi pirrandi vol 78
Hafið það gott kæru vinir <3
Helgaspjallið á Apple Podcasts & Spotify
Skrifa Innlegg