fbpx

ATMO OPNUN.

Atmo opnaði með trompi í kvöld. Ég var virkilega hrifinn af þessu, mjög stórt! Stærra en ég hafði ímyndað mér, en einnig meira spennandi en ég hafði ímyndað mér. Eflaust ánægjulegt fyrir Íslendinga að koma og sjá öll þau verk og hluti sem íslenskir hönnuðir og listamenn eru að gera en ég held að þetta sé gjörsamlega tilvalið fyrir túristamenninguna! Þetta þætti mér gaman að sjá í öðrum löndum. Mikið af flottu fólki mætti og allir einhvernvegin spjallandi og góð stemming í húsinu. Ég naut mín virkilega þarna inni.

Inná milli á meðan ég var að skoða þá snappaði ég örfáum myndum þarna inni – kannski færri en ég ætlaði mér eeeen, fátt er betra en ekkert!

Einnig fann ég jólagjöfina mína í ár – sjáið aðeins neðar!! :)

Hvet ykkur eindregið til að kíkja – mér finnst þetta æðislegt viðbót í miðbæinn :)

atmo1 atmo2 atmo3 atmo4 atmo5

Var mjög spenntur að sjá & skoða þetta!

atmo6 atmo7

Hér fann ég jólagjöfina mína í ár – guðdómleg Munda úlpa!

atmo8

Rihanna í GQ

Skrifa Innlegg