fbpx

ALLT KOMIÐ!!!

HOMEÍSLANDWORK

Baugarnir formlega komnir niður á höku og ég er búinn með 4 kaffibolla fyrir hádegi og búinn að vera með galopinn trantinn meira en lokaðan. Þykjast vera vinna vinnuna mína hérna uppí vinnu þegar ég er í rauninni að klára það síðasta sem ég tók að mér í Íslands vinnuferðinni.

Ég er semsagt búinn að skila öllu af mér og sinna öllu þar umkring!!

Ekki misskilja mig samt, þrátt fyrir svefnleysi, baugana og kaffimagaverk ég skemmti mér konunglega á Íslandi, fáranlega gaman að vera í svona keyrslu.

Ég fékk allavega ekki tíma til að blogga, hitta vini mína (sem eru eflaust margir brjálaðir núna) og komst ekki í sturtu í 2 og hálfan dag því ég hreinlega hafði hvorki tíma né orku í það.

Ég hlakka til að segja frá & sýna frá Íslands ævintýrinu, það fer formlega í gang NNNNÚNA.

En þangað til ..

Hér eru baugarnir mínir;

Photo on 10-22-13 at 12.43 PM #3

HOMME INSPIRATION

Skrifa Innlegg