fbpx

Á LEIÐINNI TIL KÍNA

DANMÖRKPERSONAL

Fyrir ykkur sem ekki vitið, þá vinn ég fyrir Elite Model Management hér í Kaupmannahöfn –

Á hverju ári er keppni á vegum Elite International sem heitir Elite Model Look, við vorum með “áheyrnarprufur” eða Castings á nokkrum vel völdnum stöðum í Danmörku og svo vorum við með stráka og stelpur sem höfðu verið stoppuð útá götu. Í final keppninni voru ágætir 4 strákar og 3 stelpur sem ég sjálfur fann. Í þeim hóp voru líka sigurvegararnir, og var ég búinn að gera óformlegan díl við yfirmanninn að ég fengi að fara með til Kína ef bæði strákur og stelpa sem ég fann mundi vinna.

Ég var búinn að gefa upp alla von enda stutt í World Final en á síðustu stundu fékk ég bréf á skrifborðið mitt uppí vinnu þar sem stóð að Elite í París (þar sem höfuðstöðvarnar eru staðsettar) höfðu sérstaklega beðið um mig til að ferðast til Kína og vinna að Elite Model Look World Final.

Sem þýðir, ég er að fara til Kína eftir 17 daga! Mjög spennandi. Þetta verður mikið ævintýri.

Ég er strax byrjaður að safna öllum auka krónum því mig langar á kínverska markaði og kaupa kínversk krydd og allskonar. Spennandi spennandi.

Elite-Model-Look-World-Final-0206-zoom kina

 

Fína hótelið sem ég verð á í Kína. Góðar 5 stjörnur og mér finnst það aaakkert leiðinlegt.

Screenshot 2014-11-02 21.39.36 Screenshot 2014-11-02 21.40.06 Screenshot 2014-11-02 21.40.30 Screenshot 2014-11-02 21.40.55 Screenshot 2014-11-02 21.42.49 Screenshot 2014-11-02 21.43.09

 

NÆS IPHONE HULSTUR FRÁ MARC JACOBS

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Fanney Ingvarsdóttir

    3. November 2014

    Hversu spennandi!! Það er stórkostlegt upplifelsi að koma til Kína, þú munt elska það! Well deserved! xx

  2. Elísabet Gunnars

    3. November 2014

    En spennandi Helgi! Þú ert vel að þessu kominn duglegi maður! Verður gaman að fylgjast með ævintýrinu með þér.

  3. Halla

    3. November 2014

    Til hamingju Helgi. Hlakka til að sjá myndir frá Kína. Gangi þér vel…..