fbpx

66 NORÐUR TEITI MEÐ COVER MAGAZINE ..

66°NorðurDANMÖRK

66°Norður opnaði á Sværtegade hér í Kaupmannahöfn í nóvember í fyrra og búðin fékk sjúklega góðar viðtökur. Þau opnuðu líka fyrir örfáum vikum sjúklega fína búð á Strikinu. Eftir að fyrsta búðin opnaði kom alveg í ljós að Danirnir voru að fýla þetta því ég var alltaf að sjá flíkurnar í blöðunum hérna úti, Costume, Cover, Euroman og svoleiðis. Í kvöld splæstu Cover Magazine og 66 Norður í heljarinnar teiti á búðinni á Strikinu sem var eiginlega alveg brjálaðslega kúl. Teitið byrjaði kl 17:00 og ég hugsaði með mér að ég mundi koma örlítið seinna og var mættur tæplega korter yfir og það var ppppakkað.

Danirnir eru mikið með þetta þegar kemur að mæta á réttum tíma, og búðin var full þangað til teitið kláraðist. Þetta var ffffffjandi impressive!

66°Norður er komið til að vera, pow!

01

Svona var þetta þegar ég mætti!

02

.. og svona var þetta út kvöldið ..

03

Einstök bjór beint frá klakanum ..

04

Flæskestegs samlokur frá Meyers – algjör lúxus!

06

Goodie bags ..

07 08 09

Katrín verslunarstjóri ..

10

Fannar markaðsstjóri 66 og tveir ljósmyndasnillingar sem ég veit ekki hvað heita ..

13 Screenshot 2015-10-22 21.28.29

Fattaði ekkert að taka myndir af mér með myndavélinni, svo ein svona sæt iphone mynd af mér og Hófí vinkonu.

Er í Bylur peysu frá 66, svörtum gallajakka frá Cheap Monday og Satín derhúfa frá Acne Studios.

Takk fyrir mig!!!

NEW IN - SPRITT NÝR ARNARHÓLL

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Pattra S.

    23. October 2015

    Wish I was there ;)