#samstarf
Eftir tískuvikuna í síðustu viku spurðuð þið margar um sólgleraugun sem ég bar á nefinu, hvaða týpa af Ray Ban þetta væri. Um er að ræða endurútgáfu af 90’s hittara frá merkinu:
Það var eiginlega ítalski ofurbloggarinn Chiara Ferragni sem seldi mér þau fyrr í sumar en ég var ekki endilega viss um að þau færu mér. Eftir að þau urðu mín um miðjan júlí þá hef ég notað þau nokkrum sinnum í viku (þar á meðal í dag) og fíla þau mjög vel.
Viljið þið eignast eins? Í samstarfi við Augað í Kringlunni má ég gefa tveimur fylgjendum mínum gleraugu. Mæli með að allir áhugasamir kynni sér hvernig: HÉR á Instagram.
Sendi sænskar sólarkveðjur yfir hafið.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg