Fatahönnuðurinn Victoria Beckham er ekki bara forsíðustúlka fyrir Vogue að þessu sinni því í jólaútgáfunni kemur hún inn sem gestaritstýra í þessari stærstu tískubiblíu – ekki slæmt!
Það er ekki oft sem að eiginmaður hennar fylgir með í tískuverkefnin en að þessu sinni opnar hún fjölskyldualbúm fyrir lesendur ásamt því að David prýður með henni forsíðurnar tvær sem að báðar eru uppfullar af rómantík.
Hún sagði sjálf á Twitter í morgun:
“So much fun guest editing the @VogueParis Christmas issue x VB,”
Ég hef trú á henni. Og er því örugglega ekki ein um að hlakka til að kippa þessu eintaki úr hillunum um helgina. VB + sinn fyrir Vogue Paris.
Þessi tvö selja mér ástina … alltaf. Held að þetta sé algjörlega true love. Hlakka til að sjá og lesa meira.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg