fbpx

URBAN SAFARI

ÍSLENSK HÖNNUNSMÁFÓLKIÐ

                                        English Version below

Vinir mínir h Ígló&Indí eru stödd í París þessa dagana þar sem ein af stærstu barnafatasýningum fór fram í vikunni – Playtime Paris.  Í þetta sinn sýna þau vetrarlínuna sína sem nefnd er Shadow Play.

Á dögunum komu þó nýjar vörur í verslanir á Íslandi sem ég er persónulega mjög hrifin af og kom inná það þegar ég heimsótti vinnustofu þeirra síðasta sumar. Í sumarlínunni fer merkið örlítið út fyrir sinn ramma með dásamlegum prjónapeysum sem eru efstar á óskalista undiritaðar. Þær fara vel við lífrænu og munstruðu bómullina sem þau eru eru mikið að vinna með.

Þetta skemmtilega myndbrot var tekið við gerð sumar lookbooksins, myndað af ljósmyndaranum Ágústu Ýr Guðmundsdóttir á sólríkum degi í Reykjavik.

Ég heyrði í Helgu Ólafsdóttur yfirhönnuð merkisins sem hafði þetta að segja um sumarlínuna:

“Sumarlína er innblásin úr Reykjavík, höfuðborginni okkar, sem tekur örum breytingum á hverjum degi. Borg þar sem náttúran og sjórinn spila stórt hlutverk. Línan og prentin eru bæði grafísk og tengd náttúrinni með dýra og blóma prentum.

Myndirnar eru teknar útá Granda þar sem mér fannst stemmingin í línunni endurspeglast vel.

Sá partur af línunni sem er úr lífrænni bómull fer ört stækkandi og næsta vetur verður nánast öll línan úr lífrænni bómull. “

 

 3_iglo+indi-SS15_kids_children_style_fashion_little_gatherer4_iglo+indi-SS15_kids_children_style_fashion_little_gatherer530076307Screen-Shot-2015-07-08-at-7.15.34-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.11.26-PMScreen-Shot-2015-07-08-at-7.11.46-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.12.47-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.12.18-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.13.38-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.11.08-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.14.49-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.14.13-PM Screen-Shot-2015-07-08-at-7.09.33-PM

Hjólaskautar, hárkollur og almenn gleði .. örugglega skemmtilegur dagur fyrir litlu fyrirsæturnar.

Frá og með um helgina má finna Ígló&Indí í sölu hjá Petit.is.

//

Have you heard about Iglo&Indi? It’s one of my favorite Icelandic brands. They make comfortable and beautiful clothes for children. Above you can see photos from their SS16 lookbook. The head designer, Helga Olafsdottir, told me that the collection was inspired by the city Reykjavik which change a lot from day to day. The nature and the see play a big role in Reykjavik and you can see that in the prints.

The best thing about the lookbook is that it seems like the models (kids) are having a lot of fun.

 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR

&
Trendnet á Facebook – HÉR

ÍSLENSKT VETRARBRÚÐKAUP Í VOGUE

Skrifa Innlegg