fbpx

TRENDNET ER TVEGGJA

LÍFIÐTRENDNETWORK

Hipp hipp húrra fyrir T R E N D N E T sem er tveggja ára í dag.

Takk kæru lesendur sem hafið fylgst með hér á síðunni síðustu tvö árin, þið sem hafið haft trú á vefsíðunni frá upphafi. Takk líka þið hin sem eruð bara nýlega byrjuð að kíkja við, við kunnum vel að meta að enn séu lesendur að bætast í hópinn.

Það eru forréttindi að fá að vera hluti af frábæru teymi af fólki úr ólíkum áttum. Pennarnir inni á síðunni hafa hvert sitt svið sem gerir mitt blogg betra – að það sé partur af síðu sem bíður uppá eitthvað fyrir alla.

Ég er þakklát á afmælisdögum og í dag þakka ég fyrir skemmtilegar stundir (og allskonar stundir) á bestu síðunni í bænum. Ekki rétt ; )

Búsett í útlöndum þykir mér frábært hvað internetið virðist vaxa – þannig skapast tækifæri á að vinna að sama verkefninu allstaðar frá í heiminum til lengri tíma. Það eru forréttindi í þeim sporum sem ég er í.

1

“Halló héðan !”

Time flies when you are having fun. Engin spurning!

Ég mæli með að þið fylgist með á síðunni þessa fínu afmælishelgi því á afmælum gefur maður afmælisgjafir og eins og áður (í fyrra) gleðjum við lesendur með gjöfum í tilefni dagsins.

Góða helgi yfir hafið. Eigið hana sérstaklega góða.

xx,-EG-.

NIKE UP YOUR LIFE

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Emilía Einarsdóttir

    9. August 2014

    Ég er ekkert smá glöd yfir ad tetta blogg sé til og ég hef fylgst med ykkur frá upphafi!! Ég er reyndar bara 13 àra en fæ svo mikin innblàstur frá tessari sídu og ég hlakka mikid til ad fylgjast med ykkur í framtídinni.
    Til hamingju med daginn Trendnet!

  2. Elísabet Gunnars

    9. August 2014

    Elsku Emilía, ég er ekkert smá ánægð með kommentið þitt. Takk fyrir að skilja eftir þig orð. Fylgstu vel með þessa afmælishelgi þegar allir bloggarar gleðja lesendur með gjöfum. Takk fyrir að lesa Trendnet. Eigðu góðan dag!

  3. Ásthildur

    10. August 2014

    Til hamingju með 2ja ára afmælið :) skemmtileg og flott síða ;)