Það var við hæfi að breyta hausnum hér uppi á blogginu á sama tíma og við gerðum betrumbætur á vefsíðunni sjálfri.
Við fengum hina yndislegu Aldísi Pálsdóttur með okkur í lið og áttum með henni skemmtilega kvöldstund.
Ég get í alvöru ekki hætt að mæla með þessum ljósmyndara. Hún kann sitt fag uppá 100. Og það er svo gaman að sjá hvað hún leggur mikla sál í verkefnin þó að það sé ekki stærra en til dæmis þetta með okkur. Vill að allir séu glaðir með útkomuna og þannig á það auðvitað að vera. Algjört toppeintak!
Blússa: H&M – nýleg kaup sem að ég tók stóra í stærð svo að see trough efnið njóti sín betur.
Varir: Slim Lipstick í litnum Matt 401 – frá Make Up Store.
Takk fyrir mig Paldís !
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg