Glænýtt Glamour er komið út með enga aðra en Heather Marks, ofurfyrirsætu á forsíðunni. Mynduð af Silju Magg í New York.
Í blaðinu má meðal annars finna hinn fullkomna leðurjakka á óskalista ritstjóra á fremstu síðu – Moss by Elísabet Gunnars. Vei og takk!
Ég hef því miður ekki getað notað yfirhafnir mikið hér í þýska uppá síðkastið en þessi hangir og bíður eftir mér fyrir íslenska sumarið. Ég lagði mikla vinnu í það að hanna bikerjakka sem væri 100% fullkominn í sniði og efni að mínu mati – þetta var útkoman og ég er glöð að heyra að fleiri séu sammála að vel hafi tekist til.
Ég les alltaf leiðara ritstjóra þegar ég opna tískutímarit. Þeir hafa yfirleitt mikið vit á því sem þeir segja ásamt því að telja upp það helsta sem finna má í blaðinu hverju sinni – því veit maður um leið hvort maður hafi raunverulega áhuga á efni blaðsins eður ei. Álfrún (Pálsdóttir) er þar engin undantekning en hún talar um útvítt fyrir sumarið og sterkari liti í vali á varalitum. Veit hvað hún syngur …
Gleðilega tískuhelgi með eitt stykki íslenskt Glamour við hönd.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg