fbpx

STÍLLINN Á INSTAGRAM: DÓRA JÚLÍA

FÓLKSTÍLLINN Á INSTAGRAM

Uppáhalds íslenski plötusnúðurinn minn, Dóra Júlía, situr fyrir svörum í Stílnum á Instagram að þessu sinni. Um er að ræða litríka og ljúfa stúlku sem stefnir langt í lífinu og veitir mér innblástur í hvert sinn sem ég sé hana – bæði í daglegu lífi og á samskiptamiðlum.

Hver er Dóra Júlía?
Fer eftir skapi og dögum! En í hnotskurn 24 ára gömul stelpa sem er stöðugt að uppgötva nýja hluti í lífinu, hef áhuga á ótrúlega mörgu og vinn sem DJ.

Hversu mikilvægur er klæðaburður í þínu fagi?

Klæðaburður hefur alltaf verið mikilvægur fyrir mér og ég held að það hafi miklu frekar með það að gera hver ég er heldur en það við hvað ég starfa. Hinsvegar er mjög gaman að vinna einhversstaðar þar sem maður hefur frjálsar hendur þegar kemur að klæðnaði. Mér hefur alltaf fundist ótrúlega gaman að fatastíllinn minn sé á stöðugri þróun samhliða mér sem manneskju og eftir að ég byrjaði að DJa hef ég leyft mér að fara nýjar og ýktari leiðir en áður, þá sérstaklega í litum og skrauti.

Áttu þér einhverja tískufyrirmynd?

Frá því ég var unglingur hef ég verið mjög hrifin af Kate Moss því það er bara eitthvað við hana sem ég dáist að, þó ég geti ekki endilega ákveðið nákvæmlega hvað það er. Annars finnst mér allir sem eru samkvæmir sjálfum sér og leyfa sér að klæða sig eins og þau langar tískufyrirmyndir útaf fyrir sig.

Must have flík í þínum skáp?
Allt sem er bleikt. Og pallíettur og fjaðrir. Svo mikil gleði í því.

Hefur þú einhver tískutips fyrir ungar stúlkur? Wear whatever you feel like.

Hvað er á döfinni?
Allskonar skemmtilegt! Er búin að bóka slatta af áhugaverðum giggum núna í vetur sem ég hlakka mikið til. Svo er ég að fara til Parísar yfir 25 ára afmælið mitt með mömmu og mig langar svolítið að gefa sjálfri mér bleika chanel tösku í afmælisgjöf úti. Svo fer ég til LA í október í smá frí og ég og kærastinn minn stefnum á að fara til Costa Rica um jólin að læra að surfa, sem er eitthvað sem mig hefur lengi langað til. Þannig mega stuð framundan og good vibes only.

________

Persónuleikinn skín í gegnum stílinn hennar Dóru og mikið sem ég kann að meta slíkt í fari fólks. DJ Adora spilaði í afmælinu mínu á dögunum og í brúðkaupi helgarinnar og í bæði skiptin stóð hún sig virkilega vel. Áhugasamir getið bókað hana hér: djdorajulia@gmail.com.

Takk fyrir að leyfa okkur að kynnast þér betur @dorajulia – Áfram þú!

 

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&

Trendnet á Facebook – HÉR

H&M ♡ ICELAND

Skrifa Innlegg