fbpx

STÍGVÉL: JÁ EÐA NEI?

SHOP

Ég hef haft augastað á stívélum frá Arket frá því í lok janúar (!) og var að vonast eftir því að geta gert betri kaup á þeim þegar útsölurnar byrjuðu í sumar. Ég var ekki svo heppin því stígvélin voru eitt af fáum vörum sem ekki fer á útsölu … og þá eiginlega afskrifaði ég þau því ég var búin að ákveða að ég fengi þau á lækkuðu verði. EN ég er ennþá að hugsa um þau sem þýðir kannski að ég ætti að leyfa mér að fjárfesta í þeim? Mig “vantar” stígvél og finnst þessi svo góð í sniði.
Þau koma í rauðu, nude, brúnu og svörtu … og mig langar í rauð … væri örugglega búin að kaupa mér þau ef ég væri að pæla í svörtum.
Það hefur verið mikið á milli tannana á fólki að útsölur á Íslandi séu svo miklu lélegri en erlendis. Það má vel vera að eitthvað sé til í því en eins mikið og ég elska útsölur þá eru þær ekki endilega mér í hag, ekki heldur í útlöndum ;)

Maður þarf ekki að eiga allt sem maður girnist … Hmm, haaa …. Hjálp óskast.

JÁ EÐA NEI?
Fást: HÉR

xx,-EG-.

ANNA WINTOUR SVARAR FÓLKINU Á GÖTUNNI

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Anna Bergmann

    22. July 2019

    Já Já Já !!

  2. Halla

    26. July 2019

    Rauði fallegi liturinn sem fangar augað í hillu kaupmannsins.Láttu ekki falla í freistni stendur einhverstaðar. Áttu pláss í skóskápnum?.
    Bestu kveðjur til ykkar.

    • Elísabet Gunnars

      29. July 2019

      Já rétt er það Halla … ég á örugglega ekki pláss fyrir þau en með þau á heilanum haha.