Ég er svo sjúk í nýjustu línu Malene Birger sem sýnd var á tískuvikunni í Kaupmannahöfn á dögunum. Svona eiga haustlínur að vera að mínu mati. Layer ofan á layer: ég kann virkilega vel að meta það.
Það hefur oft verið gert grín af mér vegna þess hversu mörgum lögum af fötum ég klæðist. Núna ætla ég að klæðast þannig með stolti þegar ég get og hugsa til þessarar línu. Klæðumst bara nógu miklu – það má, ef það er gert rétt eins og hér að ofan.
Malene sjálf var áhorfandi á sýningunni þar sem hún er hætt sem yfirhönnuður. Sú hefur örugglega verið montin með sitt.
Ég er virkilega hrifin.
♡ it.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg