American Vintage er franskt merki sem selur tímalausar vörur í vönduðum efnum og fallegum sniðum. Ég á nokkrar flíkur frá þeim sem flestar voru keyptar meðan ég bjó í Frakklandi. Nýjasta flíkin mín er samt sem áður keypt á Íslandi en ég hef ekki vitað af merkinu í boði þar áður. Er það kannski vitleysa í mér?
Peysan að ofan var semsagt keypt í nýrri verslun á Laugavegi, Anna Ranna, sem bauð uppá örlítið úrval frá þessu fína merki og mögulega meira í dag en þá. Getið kíkt á það!
Fyrir haustið langar mig í fleiri flíkur frá þeim en þessar að neðan eru á óskalista.
Notagildið verður yfirleitt mikið enda sjáið þið að þarna eru bara klassísk snið í fallegum jarðlitum en það er það sama og merkið hefur boðið uppá lengi.
Fyrir mína parta er ég líka orðin spennt fyrir rúllukraga og rútínu …. allavega fljótlega.
Langar …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg