Þessa dagana stendur tískuvikan yfir í New York. Tískuvikum fylgir tískufólk og lét Rihanna sig ekki vanta á sýningar helgarinnar.
Söngkonan náðist á mynd í gærdag þegar hún klæddist afslöppuðu lúkki á götum borgarinnar. Um er að ræða fatnað úr línu H&M x Alexander Wang sem brátt kemur í verslanir en enginn hefur séð áður. Lofar góðu? Í það minnsta ber hún fatnaðinn mjög vel með Gucci veski á öxlinni og gyllt body chain á berum maganum.
Logo all over again ….. Ég held að við getum þakkað Calvin Klein fyrir það start.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg