Það má með sanni segja að maður sé heldur betur búinn að tíska yfir sig um helgina. Mikið hafa dagarnir liðið hratt. Fylgdust þið örugglega ekki öll með mér á Nova snappinu? Við blogguðum líka í beinni eftir hverja sýningu: HÉR með hjálp frábærra gestapenna og efnilegs ljósmyndara.
Takk fyrir mig Reykjavik Fashion Festival. Hátíðin verður glæsilegri með árunum sem líða. Ég tók saman mín uppáhalds lúkk frá pöllunum.
SIGGA MAIJA
JÖR by Guðmundur Jörundsson
Það er svo gaman hvað hver og einn hönnuður er ólíkur. Gerði hátíðina fulla af fjölbreytni og gestum tækifæri á að finna eitthvað við sitt hæfi.
Eins og áður fell ég frekar fyrir vissum stílum frekar en heilum sýningum – og síðustu daga fann ég eitthvað hjá flestum sem mætti hanga í mínum fataskáp næsta haust, ég hlakka til.
Myndirnar að ofan tók Hildur Erla – ung og efnileg stúlka sem fylgdi okkur um helgina. Henni er vert að fylgjast með.
Til hamingju öll sem komuð að hátíðinni með einhverjum hætti.
Áfram Ísland.
xx,-EG-.
Ég minni á að það er síðasti séns að merkja sitt #TRENDLIGHT móment í dag. Við drögum vinningshafa á morgun. 2x 50.000 króna gjafabréf frá Icelandair. Ekki slæmt! Takk fyrir góða þáttöku nú þegar kæru lesendur.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg