fbpx

RAUÐAR VARIR NÆSTA SUMAR .. OG NÚNA?

FASHIONMAGAZINETREND

Föstudagur enn á ný .. Voðalega líða vikurnar hratt!
Grein vikunnar fáið þið hér en hún birtist í Lífinu, fylgirit Fréttablaðsins í morgun.
Raudarvarir

Þessa dagana standa yfir skemmtilegustu vikur ársins fyrir tískuáhugafólk. New York Fashion Week er ein af stærstu tískuvikunum og undirrituð fylgdist spennt með úr fjarska þegar næsta sumar var kynnt vestanhafs.

Þegar við höfum séð hvað koma skal er oft erfitt að bíða fram á vor eftir að fá að taka þátt í því sem heillar hverju sinni. Hár og förðun eru þó atriði sem við þurfum ekki endilega að bíða með, það er í góðu lagi að stela þar nokkrum punktum til að tileinka sér strax. Eða hvað?
Við höfum verið mötuð með nude vörum inn í haustið og þær halda áfram út veturinn og jafnvel fram á næsta sumar. Með hækkandi sól eigum við þó von á breytingum miðað það sem fyrirsætur tískupallanna sýndu okkur. Rauðar varir skal það vera, en þó með réttu handbragði. Hönnuðir voru samróma um að sterkur litur rauðu varanna eigi að njóta sín á móti ferskri náttúrulegri förðun. Glóandi heilbrigð húð á móti æpandi vörum og augnfarða í lágmarki.

 Victoria Beckham
Victoria Beckham SS16

Victoria BeckhamSS16
Victoria Beckham SS16

BadgleyMischkaSS16
Badgley Mischka SS16

DKNYSS16
DKNY SS16

Jason WuSS16
Jason Wu SS16

Oscar de la RentaSS16
Oscar de la Renta SS16

Zac PosenSS16
Zac Posen SS16

Þetta er förðun sem ég kann að meta, einfaldleikinn ofar öðru. Náttúruleg fegurð á að fá að njóta sín með smá skrauti og þar getur rauður varalitur einmitt gert kraftaverk.
Við megum láta okkur hlakka til næsta sumars … eða taka trendið upp núna.

Hér að neðan hef ég tekið saman kauphugmyndir. Ólíkar áferðir  sem eiga það sameiginlegt að gefa okkur þennan sterka lit. Nú er bara að prufa sig áfram .. hvað hentar hverjum. Er ekki um að gera að byrja bara um helgina?

sexy_siren_lip_luster_article_gallery_portrait

Michael Kors: Sexy Siren

Arthur nr. 440
Chanel: Arthur 440

F002875951DALipstick_F39.psd
Dior AddictILIABEAUTY_WildChild_grande
RED ILIA

Maybelline Red Revival
Maybelline: Red Revival

VIVA GLAM Lipstick 1
MAC: VIVA GLAM

Ég fer inn í helgina með rauðar varir. Tek forskot á sæluna!

xx,-EG-.

 Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

W1 LONDON

Skrifa Innlegg