fbpx

PROJECTS – BALDUR KRISTJANS

FÓLKINSPIRATION

Einn af okkar færustu ljósmyndurum, Baldur Kristjáns, heldur úti skemmtilegu og óvenjulegu myndabloggi á heimsíðunni sinni undir tiltilnum – Projects.
Bloggið veitir manni innblástur og er góð tilbreyting frá þeim bloggum sem eru í netrúntinum. Það er sérstaklega áhugavert fyrir mig því ég hef svo mikinn áhuga á allskonar fólki. Ljósmyndarinn virðist einnig vera samstíga mér í aðdáun á gömlu fólki, myndir af þeim geta sagt okkur svo mikið.

Baldur myndi kannski ekki viðurkenna það, en myndabloggið hans hefur líklega að geyma besta streetstylebloggið í Reykjavík (samkeppnin ekki mikil) – Humans of Skólavörðustígur.

Bloggið semsagt skiptist í fjóra flokka – Humans of Skólavörðustígur, Helgi úrsmiður, Tommy boy og Chevy-inn. Þessir tveir fyrstu eru í uppáhaldi hjá mér og og hér að neðan sjáið þið nokkrar útvaldar …. Helgi úrsmiður bræðir mig.

HUMANS OF SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR

HOS_IMG_4948-1000x750 HOS_IMG_4992-1000x750 HOS_IMG_5699-1000x750 HOS_IMG_5702-1000x750 HOS_IMG_8903-1000x750 HOS_IMG_9860-1000x750 HOS_P7A3811-1000x750 IMG_5202-1000x750

HELGI ÚRSMIÐUR

IMG_4349-1000x750 Helgi_IMG_5482-1000x750 IMG_2064-1000x750 Helgi_IMG_5156-1000x750 Helgi_IMG_53131-1000x750 HelgiUrsmidur_IMG_5371-1000x750 HOS_IMG_5705-1000x750
Fleiri myndir getið þið skoðað hér PROJECTS

Áfram Ísland!
Hlakka til að fylgjast áfram með.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

HENGIRÚM HANDA MÉR

Skrifa Innlegg