fbpx

NICOLAS CHESQUIÉRE TEKUR VIÐ KEFLINU !

FASHIONFÓLK


BOOM! Nýjustu fréttir eru staðfestar.

Nicolas Chesquiére yfirtekur hlutverk Marc Jacobs sem listrænn stjórnandi hátískuhússins Louis Vuitton. En Jacobs kom öllum á óvart í síðustu viku þegar að tilkynnt var að hann myndi hætta og einbeita sér að öðrum verkefnum.
Fyrir ykkur sem að ekki vitið þá var mikil sorg þegar að Nicolas hætti hjá Balenciaga í nóvember í fyrra eftir 15 ára farsælan starfstíma. Ég held því að Chesquiére gæti ekki verið betri arftaki í þetta hlutverk – með mikla reynslu á bakinu. 

nicholas-ghesquiere-vogue-1may13-rex_b

Af því að það er hann sem að tekur við, þá er ég með háar væntingar. Það verður aldeilis gaman að fylgjast með framhaldinu hjá nýja yfirhönnuðinum!

xx,-EG-.

MILEY CYRUS: ÞETTA FÍLA ÉG!

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Heiðdís

    13. October 2013

    Sad að sjá MJ hætta, enda uppáhald, en sammála, spennandi að fylgjast með hvernig fer, hvernig breytingar verða næsta season :) (ps. it’s Ghesquiére ;)