BOOM! Nýjustu fréttir eru staðfestar.
Nicolas Chesquiére yfirtekur hlutverk Marc Jacobs sem listrænn stjórnandi hátískuhússins Louis Vuitton. En Jacobs kom öllum á óvart í síðustu viku þegar að tilkynnt var að hann myndi hætta og einbeita sér að öðrum verkefnum.
Fyrir ykkur sem að ekki vitið þá var mikil sorg þegar að Nicolas hætti hjá Balenciaga í nóvember í fyrra eftir 15 ára farsælan starfstíma. Ég held því að Chesquiére gæti ekki verið betri arftaki í þetta hlutverk – með mikla reynslu á bakinu.
Af því að það er hann sem að tekur við, þá er ég með háar væntingar. Það verður aldeilis gaman að fylgjast með framhaldinu hjá nýja yfirhönnuðinum!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg