Æ það er alltaf svo næs hér á Nesjavöllum, nánar tiltekið á ION þar sem við fögnum afmæli tengdapabba í þetta sinn. Ég hef komið hingað nokkrum sinnum áður en aldrei í stærri hóp eins og núna. Bæði æði.
Smá blár himinn, sjaldséð sjón.
Laugin og gufan eru í algjöru uppáhaldi. Við Gunni tókum að okkur morgunvaktina klukkan 7 áður en aðrir gestir létu sjá sig. Kyrrð og ró og útsýni og orka sem ég elska, líka í gráu veðri eins og Reykjavík og nágrenni býður upp á þessa dagana.
Jakki: Zara herradeild, Buxur: H&M, Skór: &OtherStories
Dýrmætt deit við þetta lið <3
Það gleður að sjá Sjöstrand á herbergjum.
Einn bolli og svo tékka okkur út.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg