Góðan daginn og gleðilegan Mottumars! Já, það er ennþá mars og sá mánuður er svo sannarlega mikilvægur fyrir Krabbameinsfélag Ísland sem fer fyrir árveknisátaki um krabbamein hjá körlum á þessum tíma. Íslenskir karlmenn safna mottu (undirrituð er ekki alltaf að elska það lúkk þó ég viti mikilvægið sem felst í þessu skeggi) og almenningur kaupir sér sokka, sem eru mismunandi ár hvert (sérstaklega flottir í ár), til styrktar góðu málefni.
Krabbameinsfélagið er alfarið rekið á styrktarfé frá almenningi – og er sokkasalan einn af hornsteinum fjáröflunar félagsins. Sokkana má nálgast í vefverslun.krabb.is og í verslunum víða um land.
Day off byrjaði svona … eru ekki allir búnir að kaupa sér sokka?
Fást: HÉR
TRENDNET HEFUR ALLTAF TEKIÐ ÞÁTT Í ÞVÍ AÐ KYNNA ÁTAKIÐ
Allir upp með sokkana, fyrir góðan málstað!
Ég mæli með.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg