fbpx

MARY POPPINS

LÍFIÐ

Mary Poppins er flottasta sýning sem að ég hef séð en við mæðgur ásamt frænkum skelltum okkur á þetta frábæra show í gærkvöldi.

Ég naut mín ótrúlega vel. Sagan er yndisleg, sviðsmyndin til fyrirmyndar, búningarnir, fólkið og orkan á sviðinu – vá!

Dóttir mín var með stjörnur í augunum út í gegn – þó sérstaklega yfir honum Góa sem að hún var svo heppin að fá að hitta eftir sýninguna.

Þögn í salnum eftir einleik Berts.
Alban: ,,Mamma, hann heitir samt Gói” –
*gullmóment*

Ég: Jakki: SecondHand, Bolur: SecondHand – bæði úr Spútnik.
Alba: Skyrta: Monoprix, Buxur: H&M

Ég hvet sem flesta til að kíkja á sýninguna, ekki spurning!
Takk fyrir okkur.

xx,-EG-.

ÚTVÍTT

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Karen Lind

    31. May 2013

    Ji, en sæt mynd af ykkur mæðgum!

  2. Svart á Hvítu

    31. May 2013

    Þetta er besta sýning sem ég hef séð í mörg ár! Gói er algjörlega frábær í þessu hlutverki, og ég sat sjálf með stjörnur í augunum yfir öllu.. sviðsmyndinni, tónlistinni, dönsunum, leiknum og bara öllu!:)

  3. Katrín Andrés

    1. June 2013

    Æðislegar! :)