fbpx

Marc Jacobs – TAKA1

Til hamingju með stórafmælið Marc Jakobs !!
Það er alveg ótrúlegt en þessi flotti fatahönnuður er einmitt 50 ára í dag. Aldurinn kemur þó flestum á óvart því hann lítur ekki út fyrir það að bera þessa tölu.
Hann sagði sjálfur:
,, Ég æfi tvo tíma á dag 5 daga vikunnar

Það fór örugglega ekki fram hjá neinum þegar að ég skellti mér til London á Coke Light event í tilefni af samstarfi þeirra við hönnuðinn.
Ég var svo heppin að fá þar spjall með honum sem að er líklega það stærsta sem að ég hef upplifað innan tískuheimsins.
Ásamt því að fá að spyrja hann nokkurar spurninga í minna rými þá var ég líka viðstödd þegar að hann talaði yfir hóp af flottu fjölmiðlafólki og bloggara víðsvegar að úr heiminum. Ég fékk því svör við ansi mörgum spurningum um hann sem fatahönnuð sem og einstakling.

Í tilefni af afmælinu fannst mér tilvalið að birta loksins þær myndbandsklippur sem að ég átti til. Ég klippti saman áhugaverð svör frá honum í tvö stutt myndbönd. Það fyrra sjáið þið hér að neðan. Hitt set ég inn á morgun.

Þið sjáið að andrúmsloftið var mjög afslappað. Hann er ekki mikið að stressa sig á hlutunum en virðist þó vera með þá hreinu .. Þetta voru hans skoðanir. Við getum tekið eitthvað af þeim til okkar.

Þið afsakið nýgræðings uppsetninguna á myndbandinu.
Vonandi náið þið þrátt fyrir það að njóta þess … með mér.

xx,-EG-.

 

 

ÚTSÝNIÐ

Skrifa Innlegg