Tískuvikan í Mílanó gaf undirritaðri innblástur síðustu daga þar sem hátískan sýndi vel heppnaðar haust línur. Athygli vakti að sjá hinn einfalda hvíta hlýrabol í nánast hverri sýningu, flík sem við allar höfum klæðst, viljum klæðast og munum klæðast lengi. Prada skellti litlu merki framan á brjóstið á meðan Matthieu Blazy sýndi sömu flík í sinni fyrstu línu fyrir fyrir Bottega Veneta. Bevza gaf okkur síðan prjónaða útgáfu í sama sniði en allir eiga bolirnir það sameiginlegt að vera með hringlaga háls og breiða hlýra.
Prada AW22
Bottega Veneta AW22
Bevza AW22
LOEWE sýndi sömu flík fyrr því sumarlína tískuhússins lumar á sambærilegu ..
LOEWE SS22
Fæst: HÉR
Hvar finnum við hvíta hlýraboli í íslenskum verslunum um þessar mundir? Ég tók saman nokkra næs hér að neðan –
Andrá, Fæst: HÉR
NTC, Fæst: HÉR
Húrra Reykjavík, Fæst: HÉR
AndreA, Fæst: HÉR
Bestseller, fæst: HÉR
H verslun, fæst: HÉR
Happy shopping!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg