Það er ekki að ástæðulausu hversu mikið ég elska vini mína hjá Lindex. Haustið lofar ansi góðu miðað við myndir sem sýna væntanlegar vörur. Það verður ekki bara Jean Paul Gaultier samstarfið sem mig dreymir um… þetta fyrir neðan má margt verða mitt.
Hver ætli hafi séð um stíleseringuna? Mér finnst hún til fyrirmyndar!
Peysa við leðurpils. – sniðið á pilsinu er geggjað.
Þessar buxur.
Þetta lúkk.
Á köldum haustdegi gæti þessi kápa hlýjað manni.
Hinar fullkomnu þvegnu gallabuxur? Sýnist það.
Úllala.
Sunday.
Það er alltaf veður fyrir (p)leður.
Þetta dress kallar: E L Í S A B E T. True story?
Það hafa svo sannarlega orðið breytingar í tískuvitund hönnunardeildarinnar síðan ég fór að fylgjast með fyrir 5 árum síðan. Ég hef lengi þekkt sænsku Lindex en aldrei líkað jafn vel við þeirra vinnu og í dag. Margt er á spilaborðinu hjá fyrirtækinu og ég er svo heppin að fá að vera örlítill partur hjá þeim á Íslandi.
Ég bíð spennt eftir nýjum vörum (!)
Norðanmenn bíða eflaust líka spenntir því verslun Lindex á Akureyri opnar á Glerártorgi 16 ágúst – það styttist.
Þetta eru þá þær vörur sem þið megið búast við.
Langar …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg