Okkur mæðgum barst til franska landsins þessi nýútgefna bók, Lokkar eftir Theodóru Mjöll.
Ég verð að mæla með. Þetta er ekki bara hárgreiðslubók fyrir mömmur. Þetta er eitthvað svo miklu meira. Þegar að ég fletti henni fannst mér frekar eins og að ég væri að fletta ævintýrabók en mikið er lagt í myndir og leikmynd sem að gerir bókina svo lifandi. Með því móti nær höfundur til barnanna líka.
Saga Sig tók myndirnar og Hildur Sumarliðadóttir sá um stíliseringu.
Til hamingju Lokkar! Bókin er æðisleg.
Nú er það bara að setja sig í stellingar og byrja að prufa greiðslurnar í Ölbuna mína. Ég hlakka til.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg