Ein af mínum uppáhalds, sjálf Kate Hudson, er nýtt andlit Lindex.
Síðasta vor var það Penélope Cruz sem fór með sama hlutverk fyrir verslunina. Í haust var það Karlie Kloss fyrir Matthew Willamsson gestalínuna og áður hafa nöfn á borð við Gwyneth Paltrow og Reese Witherspoon setið fyrir keðjuna. Það er því að verða komin ansi fínn hópur af flottum konum í Lindex klæðum. Það sem er auðvitað skemmtilegast við þessi stóru samstörf er að Ísland fái að vera hluti af þeim. Hudson er andlit sem selur – ávallt svo glöð og geislandi.
Svarti hatturinn sem hún ber á næstsíðustu myndinni var einmitt í “Frá toppi til táar “pósti hjá mér í síðustu viku en svo heillar kögurpeysan mjög mikið. Must have fyrir mig.
Þessar heilla líka:
Spennó!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg