Maður verður varla hamingjusamari en á dögum sem þessum .. Við parið skáluðum fyrir ástinni í brúðkaupsfögnuði hjá þýskum vinum sem gátu ekki beðið um betra veður á stóra deginum. Ef þetta væri alltaf raunin á íslenskum júnídögum þá væri ég í minni vanda við að velja minn dag. Maður þorir ekki að taka sénsinn …
Ég var á síðasta snúning að finna mér dress en rótaði því bara í skápnum og fann til sitt lítið af hverju.
Kjóll: H&M Trend / gamall
Perslujakki: Spútnikk / gamall
Veski: París / vintage verslun
Skór: Kolaportið
Hálsmen: Hildur Hafstein
Sólgleraugu: RayBan
Gunnar var JÖR-aður frá toppi til táar
Skór: Clarks
Laugardagur til lukku! Ég þori að veðja á það.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg