Ég hef haft augastað á kjól úr sumarlínu Viktoriu Beckham í dálítinn tíma. Ég er svo hrifin af lausa peplum sniðinu – það lúkkar.
Það er líklegt að ég hafi tekið betur eftir honum þegar hönnuðurinn sjálfur klæddist honum og seldi mér hann enn frekar.
Ég ákvað að deila með ykkur lönguninni þegar ég rakst á SUIT kjól í heimsókn minni í verslunina á Skólavörðustíg. Álíkur að mörgu leiti og meira að segja í rétta litnum.
Hvað finnst ykkur?
Þennan væri hægt að klæða upp og niður …
Langar.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg