Það eru spennandi tímar framundan hjá Topshop. Í vikunni er von á samstarfshönnun Kendall og Kylie Jenner og Ísland er svo heppið að fá að vera með! Fatalínan kemur í búðir þann 3 júní og ég er orðin nokkuð spennt eftir að fyrstu myndir voru birtar um helgina …
Kendall og Kylie eru báðar risa innblástur í tískuheiminum, fylgt eftir hvert skref þar sem stíll þeirra er myndaður í bak og fyrir. Þær hafa milljónir fylgjenda á samskiptamiðlunum sem telja líklega mínúturnar í fyrslu flíkurnar á slárnar. Það er því ekki að undra að Topshop vilji vinna með þeim og við fögnum því að fá að vera með í stuðinu. Kíkið við í Kringlunni á miðvikudag og berið fleiri flíkur augum. Línan kallar á sumarið, það hlýtur að vera rétt handan við hornið!
Happy shopping!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg