Í dag hefst sala á bleiku slaufunni hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
Ég nældi mér í eina slaufu og mæli svo sannarlega með því að þið gerið það líka.
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum og með kaupunum getið þið stutt þessa baráttu. Á heimasíðu bleiku slaufunnar má finna meiri upplýsingar um átakið og þar má einnig skrá sjálfa sig eða vin í leghálskrabbameinsleit, sem er nauðsynlegt að fara í reglulega.
Ég mæli með að allir kaupi sér slaufu og beri hana á brjósti eins og ég og Kate.
xx, EG.
Skrifa Innlegg