fbpx

JóiPé & Króli í Fucking Young Magazine

JóiPé og Króli eru í miklu uppáhaldi hjá mér – eða í raun hjá allri fjölskyldunni. Þeir komu fram í brúkaupi okkar og slógu svo sannarlega í gegn! Dóttir mín elskar þá og ég líka, þeir eru eitthvað svo svalir og einlægir, ekkert að rembast. Nútíma rapparar að mínu skapi.

Það skemmir heldur ekki fyrir að þeir eru fasjón og óhræddir við að tjá sig í klæðavali.

https://www.instagram.com/p/BrPgIx4hPsH/

Ég rakst á þennan myndaþátt með þeim fyrir spænska tímaritið Fucking Young. Tímaritið fjallar um herratísku og er beint að yngri kynslóðinni. Myndaþátturinn er tekinn í Kaupmannahöfn og eru þeir klæddir í danska merkið Soulland. Merkið er vinsælt í götutískunni í Danmörku og hefur m.a. unnið línu með 66°Norður.

Hér hafið þið myndaþáttinn –

Ljósmyndari: Illa Bonany
Stílisti: Moh Galilea
Fyrir Fucking Young! Online

xx,-EG-.

@elgunnars á Instagram – HÉR
&

Elisabetgunnars á Facebook – HÉR

 

 

 

AÐVENTUGJÖF #2

Skrifa Innlegg