Eitt af Ítalíu kaupum mínum var þetta fína og sumarlega hálsmen. Ég keypti það í lítilli skran búð í hafnarbænum Las Spezia en þar gisti ég í þrjár nætur á meðan á Cinique Terra ævintýrinu stóð.
Ég notaði það í fyrsta sinn á deiti okkar hjúa í Mílanó borg. Sú borg kom mér á óvart eftir að margir höfðu gefið mér leiðinlega mynd af henni áður en að ég mætti á staðinn. Iðandi mannlíf, fallegar byggingar, búðir og barir.
Ég klæddist – Bolur: &OtherStories, Hálsmen: ÍtalíuKaup, Stuttbuxur: Gamlar frá GinuTricot
Gunni klæddist – Levis skyrtu.
Ó mig eina þessi ítalski matur. Segi ég og skrifa nartandi í mozzarella og tómata hér í franska. Það er ekki hægt að venja sig af þessu. Nammi …..
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg