Gleðilegt sumar kæru lesendur nær og fjær. Það er ótrúlegt að það sé komið annað sumar (!) – hitt var að klárast. Þessi vetur flaug áfram á þessum bænum.
Mikið sem það gleður mig að sjá þessa gulu svona fallega á lofti á Íslandinu góða á þessum fyrsta sumardegi sem hefur svo oft verið grár. Það er venjulegur dagur í danska og ég er búin að sitja lengi við vinnu þegar þessi póstur er skrifaður. Ég ætla samt að sækja börnin snemma og njóta í anda íslensku hefðarinnar, engin spurning!
Takk fyrir að vera svona trygg við Trendnet í vetur – það hefur verið svo mikið stuð að fá að njóta hans með ykkur.
Elísabet Gunnars í hamingjukasti gjörið yður svo vel ;)
Spöng: Lindex, Hálsmen: AndreA, Hlýrabolur: gamall vintage, Sólgleraugu: WERA Stockholm/frá Ahléns (keypt í síðustu viku – nokkrar að spyrja mig á Instagram)
Myndir: Tinna Mark
Já og eitt enn. When in Ribe (elsta bæ Danmerkur) þá mæli ég með krúttlegasta kaffihúsinu í bænum, Quedens Gaard.
HAPPY summer.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg