fbpx

GERSEMAR HJÁ GAULTIER

FASHIONINSPIRATIONLANGAR

Á sumrin erum við flest í leit að draumadressi fyrir hin og þessi tilefni: brúðkaup, útskriftir og annað slíkt. Ég stalst til að mynda drauma fataslá í sýningarherbergi Jean Paul Gaultier í París. Gersemar af bestu gerð sem mig kitlaði í fingurnar að eiga sjálf. Þið eruð örugglega sammála mér þegar þið sjáið myndirnar að neðan.

2014-06-13 11.27.02 2014-06-13 11.27.05 2014-06-13 11.28.10

Ég fer sjálf í eitt sumarbrúðkaup í júlí sem ég tel niður dagana fyrir, en við gerum það flest þegar um svoleiðis tilefni er að ræða. Ég er ekki komin með dress. En þarna hefði verið auðvelt að velja á milli. Draumadress af bestu gerð!

xx,-EG-.

DAGSINS

Skrifa Innlegg