Ó, þessi tími árs genginn í garð. Gleðilegan fyrsta í aðventu kæru lesendur.
Ég held í hefðina og gef gjafir alla sunnudaga fram að jólum en fjörið fer fram á Instagram hjá mér.
Ég féll gjörsamlega fyrir SkyLagoon þegar við Gunni heimsóttum lónið í haust, mér finnst að sem flesir þurfi að fá að upplifa þessa nýju perlu höfuðborgarsvæðisins og gleðst því mikið yfir fyrstu aðventugjöf ársins. Næring fyrir líkama og sál.
Í samstarfi við Sky Lagoon gef ég heppnum fylgjendum aðgang í heilsulindina auk veglegra gjafaboxa frá þeirra eigin merki. Slökun og endurnæring þar sem himinn og haf renna saman og húðvörur sem allar eru lífrænar, vegan og úr náttúrlegum olíum.
Æ hér er gott að vera, njóta, lifa … mæli með upplifun í jólapakkann.
GJAFAKORT OG GJAFASETT FÁST HÉR
Psst. Á afslætti fram að jólum
Vellíðan og hugarró er hér
Gufan eru engu öðru líkt, á þessum bjarta degi með útsýnið stillt og fagurt en síðast fékk ég grátt og vindasaman dag og það var engu síðra – hvernig sem viðrar, mæli ég með.
Sundbolur: Swimslow/Andrá
Takk fyrir mig.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg