UN Women á Íslandi hefja sölu á glænýjum Fokk ofbeldi bol í dag. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. Ég er nú þegar búin að fjárfesta í einum slíkum þegar þetta er skrifið, endilega hermið sem flest eftir þeim góðu kaupum með því að smella: HÉR
UN Women á Íslandi fengu söngkonuna GDRN til leggja átakinu lið en FO langerma bolurinn skartar ljóði GDRN sem er táknrænt fyrir baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi á bakhlið bolarins. Ótrúlega vel heppnað ..
Eins og áin.
Breytileg og kröftug.
Straumþung og flæðandi.
Hún tekur óvæntar stefnur.
Stundum er lítið í henni.
En sama hvað heldur hún áfram að streyma.
Saman stýrum við straumnum.
-gdrn
FO bolurinn er rjómalitaður í oversized sniði úr mjúkri bómull. Framan á er ljósmynd eftir Önnu Maggý sem sýnir FO á táknmáli. Aftan á er frumsamið ljóð eftir GDRN um baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi. Aldís Alma Hamilton lagði einnig átakinu hjálparhönd og myndar FO á íslensku táknmáli.
Allur ágóði sölunnar rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon.Konur og stúlkur í neyð eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Sprengingarnar í Líbanon, 4. ágúst síðastliðinn, Covid-19 faraldurinn og djúpstæð efnahagskreppa veikja einnig stöðu kvenna og stúlkna þar í landi.
Með því að kaupa FO bolinn tekur þú þátt í að veita konum og stúlkum í Líbanon neyðaraðstoð, vernd, öryggi og kraft til framtíðar.
Vodafone er bakhjarl átaksins og gerir okkur kleift að senda allan ágóða sölunnar til UN Women í Líbanon.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg