fbpx

DRESS: JÓLASNJÓR

DRESSLÍFIÐ

photo 4

Og þá lét hann loksins sjá sig … jólasnjórinn sem við erum búin að bíða svo spennt eftir.

Síðasti dagurinn í Þýskalandi bauð svo sannarlega uppá fegurð fyrir augað. Svona á þetta að vera yfir hátíðirnar. Snjór á jörðinni en samt sem áður birta frá báðum áttum með bláan himinn og þá gulu sýnilega – milt og ískalt!! (Brr … )

photo 1 photo 2 photo 3

Ég gat loksins notað nýja úlpu sem ég fékk í lok sumars. Ég hef kannski notað hana tvisvar síðan í september útaf heitu hausti.
Ég birti mynd á Instagram í dag og það var skemmtilegt að sjá hversu margir forvitnuðust um hvaðan úlpan er.

Sólgleraugu: RayBan
Úlpa: 66°Norður
Buxur: Vila
Skór: JeffreyCampbell

Sjáumst á Íslandi, bráðum! .. Ég veit að það er rigningarspá. Auðvitað.

xx,-EG-.

LÍFIÐ: JÓLADRESS

Skrifa Innlegg