Svona byrjun á deginum …
Bananalummur hafa tekið yfir frá þeim hefðbundnu á þessu heimili.
Uppskriftin er svo einföld og hægt er að mixa hana á svo marga vegu.
Í morgun var hún svona: 2 bananar, 3 egg, dass af haframjöl, dass af kanil en oft set ég kókos, hnetur eða annað sem að er til hverju sinni. Öllu máli skiptir að pannan sé á lágum hita svo að auðvelt sé að ráða við þær.
Ég set ost og avakató á mína lummu.
Svo gott …. og enn betra þegar maður hefur góðan félagsskap eins og í morgun.
Eigið góðan dag.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg