fbpx

„Chelsea boots“ eru í tísku ár hvert

FASHIONMAGAZINE

Chelsea boots eru umræða dagsins í tískubabli vikunnar fyrir Lífið, fylgirit Fréttablaðsins.Chelseaboots

 

Eitt af þínum skópörum í haust ætti án efa að vera „Chelsea boots“. Þetta er haust-trend sem kemur
til baka ár eftir ár með litlum sem engum breytingum. Svört ökkla- stígvél sem henta við öll tækifæri og virðast ganga við allavega fatn- að.

hugmynd25864fda18caed800787e4d2566cbd583hugmynd1

Eins gaman og það getur verið að bregða út af einfaldleikanum í klæðaburði þá höldum við okkur flestar niðri á jörðinni þegar kemur að skókaupum. Fallega einföld svört stígvél geta gefið lúkk sem dettur ekki úr tísku. Tímalaus kaup sem ganga vel við önnur trend sem koma og fara.

Í ár virðast skórnir vera ökklaháir, aðeins támjórri með þægilegum hæl sem gefur örlitla upphækkun – smá „sixties“ stíll. Það er þó margt í gangi og ekkert á bannlista, undirrituð mælir með að þau séu tekin sem klassískust. Þannig getur maður leyft sér að eyða aðeins fleiri krónum, keypt meiri gæði, spreyjað þau vel fyrir íslenskar aðstæður og átt þau í áraraðir.

Skoðið meðfylgjandi myndir og finnið ykkar Chelsea-stígvél.

Bianco

Bianco

zara11

Zara
DrMartins
Dr.Martins / GS skór

OXS38trep

O.X.S. / 38 Þrep

Einvera

Miista / Einvera

Vagabond-shoes-Tyra-4032-101-(Black)-010604

Vagabond / Kaupfélagið

Happy shopping!

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

PERSÓNULEG GJÖF FRÁ YSL

Skrifa Innlegg