fbpx

Chanel Espadrilles

TREND

Espadrilles skór eru fullkomnu sumarskórnir þetta árið. Með þægindin í fyrirrúmi eru flestar tískuskvísur búnar að festa trendið þó að vorið sé rétt að byrja.
Það má kenna Chanel um þetta sumartrend þó að mjög margar aðrar týpur séu í sölu – ég get jafnvel sýnt ykkur þær síðar.
Chanel hefur örugglega farið þá leið að senda skóna sem gjafir milli stjörnubloggara því ég trúi því ekki að allar þessar skvísur séu að fjárfesta í svona skóm á 320Evrur (50.000 íslenskar krónur).

9 2 131 1 3 4 6

Þessi týpa eru efst á draumalistanum mínum. Þeir mæta mér hvert sem að ég lít á veraldavefnum og kalla á mig að ég verði að eignast þá. Ég hef þó alls ekkert efni á að kaupa þá og því nota ég orðið, drauma.

Chanel, sendið mér par. Vinsamlegast.

xx,-EG-.

LANGAR

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Pattra's

    1. May 2013

    Mynd nr.4 KOMDU til mín!
    Einmitt, pínu fáránlegt að sjá alla bloggarana(bókstaflega) í þessum skóm -á sama tíma!!

    • Pattra's

      1. May 2013

      Ps -væri líka alveg til í HAY teppið á síðustu mynd:)

      • Elísabet Gunnars

        1. May 2013

        Sammála því !

  2. Anonymous

    1. May 2013

    Æðislegir skór! Aftur á móti, þegar maður hugsar að sumar af þessum tískubloggurum eru að græða á tá og fingri þá eru 50.000 krónur eflaust dropi í hafið þeim og láta þær þá ekki svona tískumadness skó fram hjá sér fara. Just saying!

    • Elísabet Gunnars

      1. May 2013

      Mér finnst 50.000 fyrir hvern sem er, fátækan eða ríkan vera svo ótrúlega mikill peningur fyrir svona týpu af skóm. En eins og þú segir þá er mökuleiki á að þær hugsi öðruvísi. :)

  3. Sigríður Erla

    1. May 2013

    Já ég er líka að bilast yfir öllum þessum myndum. Ógeðslega flottir :)

    • Elísabet Gunnars

      1. May 2013

      Væru svo góðir í sumar ….