Espadrilles skór eru fullkomnu sumarskórnir þetta árið. Með þægindin í fyrirrúmi eru flestar tískuskvísur búnar að festa trendið þó að vorið sé rétt að byrja.
Það má kenna Chanel um þetta sumartrend þó að mjög margar aðrar týpur séu í sölu – ég get jafnvel sýnt ykkur þær síðar.
Chanel hefur örugglega farið þá leið að senda skóna sem gjafir milli stjörnubloggara því ég trúi því ekki að allar þessar skvísur séu að fjárfesta í svona skóm á 320Evrur (50.000 íslenskar krónur).
Þessi týpa eru efst á draumalistanum mínum. Þeir mæta mér hvert sem að ég lít á veraldavefnum og kalla á mig að ég verði að eignast þá. Ég hef þó alls ekkert efni á að kaupa þá og því nota ég orðið, drauma.
Chanel, sendið mér par. Vinsamlegast.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg