English version below
Bob, besti vinur minn, er lentur á Íslandi og fer í sölu í Húrra Reykjavík seinna í dag – 16. desember. Fatamerki sem maðurinn minn, Gunnar Steinn Jónsson, vinnur að af ástríðu ásamt Róberti Gunnarssyni. Ég er svo heppin að fá að taka smá þátt frá upphafi til enda og get fullyrt að þetta er flottasta línan þeirra Bob bræðra hingað til. Þið hafið eflaust séð mikið af merkinu á samskiptamiðlum okkar hjúa uppá síðkastið?
@elgunnars og @steinnjonsson á Instagram
Ég tók saman mínar uppáhalds flíkur úr línunni en restina getið þið séð á heimasíðu þeirra, þar sem einnig er hægt að panta vörurnar – bobreykjavik.com.
Jólagjöfin fyrir HANN? Þá er það allavega 2fyrir1 þar sem að við konurnar græðum flík í leiðinni … ég tala af reynslu ;)
Bob er rosalega góður gæi því hann vinnur með UNICEF á Íslandi og með hverri seldri vöru fær barn í neyð hlýtt teppi sem er nauðsynlegt fyrir þau í flóttamannabúðum þar sem næturnar eru kaldar – fallegt. Því miður hafa það ekki allir jafn gott yfir hátíðarnar.
//
Check out the new collection from Bob Reykjavik, which just landed in Hurra Reykjavik and online on bobreykjavik.com.
Bob is a nice guy and with every sold product he donates a warm blanket to UNICEF. The blankets keep children warm in refugee camps – so sad that some people have to spend the holidays in that way :(
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg