Íslendingar geta fagnað komu Baum und Pfergarten til landsins – dönsk gæðahönnun sem ég hef fylgst með í nokkur ár. Um er að ræða litríkar flíkur með smáatriðum sem gleðja augað.
Ég vissi ekki af tilveru verslunarinnar á Íslandi fyrr en ég fann þær á Instagram þegar ég ætlaði að merkja official síðuna á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Sýningin var ein af þeim sem ég heimsótti síðast og haustið lofar aldeilis góðu eins og þið sáuð á Trendnet Instagram story í janúar.
Í síðustu viku heimsótti ég verslunina á Íslandi og var í beinni á Trendnet Instagram story, HÉR. Hér að neðan sjáið þið nokkrar af þeim flíkum sem ég mátaði … og langaði að taka með mér heim ;)
Hugsað út í öll smáatriði ..
Dásamlega kápa í yfirstærð – köflótt við allt ;)
Jakki drauma minna .. og see-through kjóllinn sem hefur verið mjög vinsæll frá merkinu ..
Þessi kjóll er til í fleiri litum – og þetta snið er aldeilis málið ..
Dags og nætur ..
//
Á morgun, fimmtudaginn 22.mars, býður verslunin í partý til að fagna öllum nýju vorvörunum sem voru að detta í hús. Það er tilvalið tækifæri fyrir áhugasama að gera sér ferð í Garðabæinn og kynnast þessu merki frekar. Það verða veitingar og tilboð af völdum vörum samkvæmt mínum upplýsingum.
Hvar: Garðatorg
Hvenær: 17-20
Frábært hvað Ísland býður uppá fjölbreytta skandinavíska hönnun – ég held að ég sé ekki ein um að kunna vel að meta Baum und Pferdgarten.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg